110122_eldvarnir_2

Endurnýja samkomulag um að efla eldvarnir í landbúnaði

Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, og Garðar H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins, hafa endurnýjað samstarfssamning um að efla eldvarnir í landbúnaði. Samstarfið nær til eldvarna á heimilum félagsmanna BÍ, eldvarna í úti- og gripahúsum, gróðurhúsum og öðrum mannvirkjum sem tengjast búrekstri ásamt varna gegn gróðureldum. Samkomulagið gildir árið 2023.

Ráðist í margs konar aðgerðir

Í samkomulaginu felast ýmsar aðgerðir til að ná sem best til félagsmanna Bændasamtakanna og tryggja um leið að eldvarnir í sveitum landsins verði eins og best verður á kosið. Helstu aðgerðir eru eftirfarandi:

  • Aðilar útbúa reglulega greinar um eldvarnir til birtingar í viðeigandi fjölmiðlum og koma upplýsingum um eldvarnir á framfæri með öðrum hætti.
  • Aðilar nota samfélagsmiðla til að koma á framfæri ábendingum um eldvarnir.
  • Kannaður verður af beggja hálfu möguleiki á að fjármagna gerð og birtingu auglýsinga um eldvarnir og mikilvægi þeirra.
  • Aðilar stuðli að því að fræðsla og endurmenntun um eldvarnir og öryggi í LbhÍ verði aukin og efld.
  • Aðilar vinna saman að því að gera fræðslumyndbönd um eldvarnir í landbúnaði og á heimilum í dreifbýli í samvinnu við Brunavarnir Árnessýslu.
  • Kannaðir verða möguleikar á að söluaðilar viðurkennds eldvarnabúnaðar veiti félagsmönnum BÍ hagstæð kjör í tengslum við samstarfið og verður athygli þeirra þá sérstaklega vakin á því.
  • Aðrar hugsanlegar aðgerðir sem aðilar ákveða sameiginlega að ráðast í á samningstímanum auk þeirra sem að framan greinir.

Skildu eftir svar