Lá við stórtjóni vegna logavinnu

Brunavörnum Suðurnesja tókst að koma í veg fyrir stórtjón þegar eldur kom upp í þaki húsnæðis á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun. Haft er eftir Jóni Guðlaugssyni slökkviliðsstjóra á mbl.is að eldur hafi kviknað vegna logavinnu á þakinu en að greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn og koma í veg fyrir að stórtjón yrði.

Mörg dæmi eru um að verulegt tjón hafi orðið vegna vinnu með opinn eld og neista, ekki síst þegar pappi er lagður á þök. Jón Guðlaugsson sagði við mbl.is að tjónið á Keflavíkurflugvelli væri töluvert en að enn verr hefði getað farið.

„Það gekk ágæt­lega að slökkva þetta, en það er nú eðli svona elda, þegar það er verið að vinna með hita og eld­fim efni á þökum, að ef það er ekki brugðist skjótt við þá get­ur þetta orðið ansi erfitt. En þetta tókst vel. Þetta er alltaf tals­vert tjón, ég veit ekki hversu mikið það er en tjónið er alltaf tals­vert. En það hefði getað orðið marg­falt þetta, það má eig­in­lega orða það þannig að það hafi tek­ist að forða stjórtjóni,“ sagði Jón við mbl.is.

Í þessu sambandi er rétt að minna á að Eldvarnabandalagið hefur gefið út verklagsreglur um hvernig standa skal að öryggi og eldvörnum vegna logavinnu. Þar er kveðið á um helstu varúðarreglur, logaleyfi og viðbúnað sem viðhafa skal við logavinnu. Reglurnar má nálgast hér á vefnum.

Skildu eftir svar