IMG_1791

Eldvarnaátakið er hafið – slökkviliðsmenn hvetja fólk til að efla eldvarnir á heimilunum

Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hófst í gær með heimsókn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í Sjálandsskóla í Garðabæ. Þar ræddi Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra við börnin í 3. bekk um mikilvægi eldvarna fyrir öryggi heimilanna. Þá fór fram rýmingar- og björgunaræfing og starfsfólk og Sigurður Ingi og aðrir gestir fengu þjálfun í notkun slökkvitækja.

Slökkviliðsmenn um allt land taka í kjölfarið þátt í átakinu sem beinist að því að efla eldvarnir á heimilum til að vernda líf, heilsu og eignir fólks.

Slökkviliðin beina fræðslu um eldvarnir að nemendum í 3. bekk grunnskóla og fjölskyldum þeirra. Lögð er áhersla á að heimili séu búin eldvarnabúnaði á borð við reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi:

  • Best er að hafa reykskynjara í öllum rýmum.
  • Slökkvitæki á að vera við helstu flóttaleið.
  • Eldvarnateppi á að vera á sýnilegum stað í eldhúsi.
  • Tryggja þarf öllum á heimilinu að minnsta kosti tvær flóttaleiðir.
  • Allir þekki neyðarnúmerið, 112, líka börnin.

Að jafnaði fer Eldvarnaátakið þannig fram að slökkviliðsmenn heimsækja skóla um land allt og ræða við börnin í 3. bekk um eldvarnir. Veirufaraldurinn kom víða í veg fyrir heimsóknir í skóla á árunum 2020 og 2022 en nú er gert ráð fyrir að slökkviliðsmenn fari í skólana.

Börnin fá að sjá teiknimyndina um Loga og Glóð og baráttu þeirra við Brennu-Varg. Þau fá eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins, endurskinsborða frá Neyðarlínunni, 112, og fleira. Þeim gefst jafnframt kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni en svörum er nú skilað með rafrænum hætti á lsos.is/eldvarnaatak. Vegleg verðlaun eru í boði og verða þau afhent á 112-deginum, 11. febrúar 2023.

Samkvæmt könnunum sem Gallup hefur gert fyrir Eldvarnabandalagið eru heimilin í landinu mjög misjafnlega vel varin gagnvart eldsvoðum. Almennt sýna kannanir að heimilin efla eldvarnir jafnt og þétt. Frá þessu eru þó mikil frávik. Nýjasta könnun Gallup sýnir til dæmis að eldvarnir á heimilum í Reykjavík eru mun lakari en á heimilum utan höfuðborgarsvæðisins. Og fleiri hópar þurfa að huga betur að eldvörnum heimilisins:

  • Fólk á aldrinum 25-34 ára er mun ólíklegra en aðrir til að hafa eldvarnateppi og slökkvitæki á heimilinu.
  • Eldvarnir í fjölbýlishúsum eru lakari en almennt gerist og þá sérstaklega í stærri fjölbýlishúsum.
  • Íbúar í leiguhúsnæði eru mun verr búnir undir eldsvoða en aðrir.

Helstu styrktaraðilar Eldvarnaátaksins eru Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 112, Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, Eldvarnamiðstöðin, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og önnur slökkvilið í landinu.

Skildu eftir svar