Heimili í dreifbýli þurfa öflugar eldvarnir

gardartjúnuð og hreinsuðEftir Vigdísi Häsler og Garðar H. Guðjónsson.

Mörg heimili í dreifbýli eru þannig í sveit sett að langt er í næstu slökkvistöð og útkallstími slökkviliðs því langur ef eldur kemur upp og aðstoðar er þörf. Það gerir að verkum að heimilisfólk er í senn sitt eigið slökkvilið og eldvarnaeftirlit. Eldvarnir og fyrstu viðbrögð heimilisfólks geta ráðið miklu um hvernig fer fyrir fólki og eignum. Margir gera sér grein fyrir þessu og tryggja að eldvarnir heimilisins séu ævinlega eins og best verður á kosið. Aðrir þurfa sannarlega að gera betur.

Það er ekki að ósekju að Bændasamtök Íslands og Eldvarnabandalagið hafa gert með sér samkomulag um aðgerðir til að auka eldvarnir í landbúnaði og á heimilum í dreifbýli. Könnun sem Gallup gerði fyrir Eldvarnabandalagið sýnir að úrbóta er víða þörf. Að vísu má segja bændum það til hróss að eldvarnir á heimilum þeirra virðast betri en almennt gerist miðað við kannanir Gallup undanfarna áratugi. Hins vegar er ljóst að margir eru óþarflega berskjaldaðir fyrir eldsvoðum.

Mikilvægt er auðvitað að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að eldur komi upp og reyni á eldvarnir heimilisins og setji fólk í hættu. Það má gera með ýmsum hætti; fara gætilega með opinn eld, sýna aðgát við matseld, hlaða snjalltæki í öruggu umhverfi, tryggja að raflagnir séu í lagi.

Reykskynjarar bjarga mannslífum

Vilji svo óheppilega til að eldur komi upp á heimili reynir á eldvarnirnar. Áríðandi er að tryggja að heimilisfólk fái viðvörun um að eldur og reykur sé á heimilinu. Því þarf að tryggja að nægjanlegur fjöldi virkra reykskynjara sé fyrir hendi.

  • Best er að hafa reykskynjara í öllum rýmum, ekki síst þar sem raf- og snjalltæki eru notuð og hlaðin. Reykskynjara á að minnsta kosti að setja upp framan við eða í hverri svefnálmu og á hverri hæð á heimilinu.
  • Gott er að hafa hitaskynjara í votrýmum og bílskúr.
  • Prófa þarf reykskynjara að minnsta kosti árlega. Algengast er að rafhlöður í nýjum reykskynjurum endist í fimm til tíu ár en skipta þarf árlega um rafhlöðu í skynjurum með 9 v rafhlöðu. Endurnýja skal reykskynjara á tíu ára fresti.

Samtengdir reykskynjarar eru áskjósanleg lausn, ekki síst á stærri heimilum og þar sem húsnæði er á fleiri en einni hæð. Ef einn samtengdur reykskynjari fer í gang fara þeir allir í gang. Þar sem þráðlaust net er fyrir hendi er hægt að tengja skynjarana í síma heimilisfólks í gegnum þar til gert app.

Slökkvibúnaður og flóttaleiðir

Mörgum hefur tekist að bjarga verðmætum og koma í veg fyrir stórslys með notkun einfalds slökkvibúnaðar sem þarf að vera fyrir hendi á öllum heimilum.

  • Slökkvitæki eiga að vera við helstu útgöngudyr. Þau eiga að vera sýnileg og aðgengileg þegar gengið er um íbúðina svo að allir viti hvar þau eru ef nauðsynlegt reynist að nota þau.
  • Eldvarnateppi á að vera á sýnilegum stað í eldhúsi.

Enginn ætti þó að setja sig eða aðra í hættu við slökkvistarf. Mikilvægast er að tryggja að allir komist heilir út og hringja í neyðarnúmerið, 112. Allir á heimilinu eiga að hafa aðgang að tveimur eða fleiri greiðum flóttaleiðum. Fjölskyldan þarf að ákveða stað utandyra þar sem allir hittast þurfi fjölskyldan að yfirgefa heimilið.

Tækifærið er núna!

Bændasamtökin og Eldvarnabandalagið hafa samið við Eldvarnamiðstöðina um að selja félagsmönnum í Bændasamtökunum eldvarnabúnað á sérstökum afsláttarkjörum. Allar upplýsingar um tilboð Eldvarnamiðstöðvarinnar er að finna á Bændatorginu. Við hvetjum félagsmenn til þess að yfirfara nú eldvarnir heimilisins og nýta sér tilboðið til að efla þær eftir þörfum. Tækifærið er núna!

 Vigdís er framkvæmdastjóri Bændasamtakanna.

Garðar er framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins

 

 

 

 

Skildu eftir svar