Mikilvægi viðvörunarbúnaðar vegna elds í landbúnaði

Eftir Vigdísi Häsler og Garðar H. Guðjónsson. 

Skipt getur sköpum um afleiðingar af eldsvoða ef viðeigandi viðvörunarbúnaður er fyrir hendi. Þetta á ekki síst við í dreifbýli þar sem viðbragðstími slökkviliðs er lengri en ella.

Fyrstugardartjúnuð og hreinsuð viðbrögð ábúenda á upphafsstigi elds geta ráðið miklu um hversu miklu tjóni hann nær að valda.

Sérstaklega er mikilvægt að hafa viðvörunarbúnað í gripahúsum. Reyksogskerfi henta vel sem viðvörunarbúnaður í gripahúsum. Þau eru þannig gerð að einföld röralögn er lögð um húsið. Göt eru boruð á rörin samkvæmt forskrift og þau tengd við dælu sem sogar loftsýni stöðugt inn í rörin og sendir þau í gegnum rakagildru og ryksíu að reykskynjara í stjórnstöð kerfisins. Verði vart við reyk í loftsýninu gerir stjórnstöðin viðvart með því að setja sírenu í gang eða með því að senda boð í farsíma með aðstoð smáforrits.

Hita- og reykskynjarar

Hita- og reykskynjarar geta hentað sem viðvörunarkerfi í útihúsum og getur verið gott að hafa báðar gerðir skynjara. Hitaskynjarar eru ekki eins viðkvæmir fyrir ryki og reykskynjarar. Tengja má marga hita- og reykskynjara saman þannig að fari einn í gang gera allir hinir það sömuleiðis. Þannig má tengja reykskynjara í útihúsum við reykskynjara í íbúðarhúsnæði svo fólk fái boð um eld hvort sem fólk er statt í útihúsum eða á heimilinu, hvort sem er í vöku eða svefni.

WiFi skynjara má tengja við farsíma í gegnum smáforrit og er hægt að tengja marga slíka saman. Komi upp eldur sendir viðkomandi skynjari boð í farsíma, einn eða fleiri. Unnt er að merkja hvern og einn skynjara í forritinu þannig að þegar skynjari sendir boð er strax unnt að staðsetja eldinn. Smáforritið veitir einnig upplýsingar um hleðslu á rafhlöðum í skynjurunum. Skynjarar af þessari gerð henta einkar vel þegar býlið er mannlaust.

Prófa þarf reykskynjara ekki sjaldnar en árlega. Á markaði eru úðabrúsar sem nota má til að prófa reykskynjara sem erfitt er að ná til vegna lofthæðar.

Rýmingaráætlun

Hringið alltaf í 112 og óskið eftir aðstoð ef elds verður vart. Hafið viðeigandi slökkvibúnað tiltækan og notið hann ef færi gefst en leggið ykkur sjálf eða aðra aldrei í hættu við slökkvistörf. Nauðsynlegt er að hafa rýmingaráætlun fyrir gripahús, tryggja að rýmingarleiðir séu greiðar og koma búfé út eins fljótt og kostur er.

Vigdís er framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Garðar er framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins.

 Greinin birtist í Bændablaðinu 27. apríl

Skildu eftir svar