Ársfundur Eldvarnabandalagsins verður haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 23. mars kl. 11-14 og er hann opinn öllum áhugasömum í streymi. Mörg áhugaverð erindi um eldvarnir og verkefni Eldvarnabandalagsins verða haldin á fundinum en dagskrá hans er sem hér segir:
11.00 Setning: Anna Sigurðardóttir, formaður stjórnar Eldvarnabandalagsins
11.05 Ávarp: Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar trygginga
11.15 Grétar Þór Þorsteinsson, sérfræðingur á brunavarnasviði hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun: Brunar og tjón – tölfræði ársins 2022
11.35 Svanfríður Anna Lárusdóttir, verkefnastjóri slysavarna hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg: Starf slysavarnadeildanna að eldvörnum heimilanna
11.55 Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar: Vitundarvakning um eldvarnir í Grundarfirði
12.15 Hádegishlé
13.00 Stefanía Inga Sigurðardóttir, gæða og öryggisstjóri hjá FISK Seafood: Mikilvægi eigin eldvarnaeftirlits í sjávarútvegi
13.20 Guðlaug Kristín Pálsdóttir, sérfræðingur á brunavarnasviði hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun: Brunavarnir heimilanna, hvað getum við gert betur?
13.35 Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands: Efling eldvarna í landbúnaði
13.55 Önnur mál
14.00 Fundarlok
Fundarstjóri: Friðrik Bragason, forstöðumaður innan stofnstýringar hjá Verði