Í samningum um samstarf við Eldvarnabandalagið um innleiðingu eigin eldvarnaeftirlits felst eftirfarandi:
- Að innleiða mánaðarlegt og árlegt eldvarnaeftirlit samkvæmt gátlistum og öðrum gögnum Eldvarnabandalagsins.
- Að útnefna og þjálfa eldvarnafulltrúa samkvæmt gögnum Eldvarnabandalagsins.
- Að veita starfsfólki fræðslu um eldvarnir á heimilum og vinnustað samkvæmt gögnum Eldvarnabandalagsins.
- Að setja sér eldvarnastefnu að fyrirmynd Eldvarnabandalagsins.
- Að innleiða verklagsreglur Eldvarnabandalagsins um logavinnu.
- Eldvarnabandalagið lætur allt fræðsluefni og önnur tilskilin gögn í té án endurgjalds.
- Slökkvilið hafa annast fræðslu fyrir eldvarnafulltrúa og starfsfólk án endurgjalds og verið innan handar við innleiðingu.
- Að tólf mánuðum liðnum gera aðilar sameiginlega greinargerð og árangursmat.
Eftirfarandi aðilar hafa gert slíka samninga frá árinu 2015:
- Akraneskaupstaður – þróunarverkefni
- Akureyrarbær
- Fjarðabyggð
- Húnaþing vestra
- Dalvíkurbyggð
- Vestmannaeyjabær
- Brunavarnir Austurlands (þá sex sveitarfélög) – menntaskólinn og hjúkrunarheimili bættust við
- Sveitarfélagið Skagafjörður
- Brunavarnir Árnessýslu – grunnskólar (átta sveitarfélög)
- Ísafjarðarbær
- Sveitarfélagið Hornafjörður
- Grundarfjarðarbær
- Borgarbyggð
- Síldarvinnslan, Neskaupstað
- Dögun rækjuvinnsla, Sauðárkróki
- FISK Seafood, Sauðárkróki og víðar
- Soffanías Cecilsson, Grundarfirði
- Gæðabakstur, Reykjavík og Akureyri
- Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
- Hafnareyri, Vestmannaeyjum
- Skinney-Þinganes, Höfn í Hornafirði
- Vélsmiðjan Foss, Höfn í Hornafirði
- Langanesbyggð
- Hraðfrystihúsið Gunnvör
- Kaupfélag Skagfirðinga