Eldvarnabandalagið hefur gefið út verklagsreglur um logavinnu sem fyrirtækjum og stofnunum er velkomið að tileinka sér. Markmið reglnanna er að koma á öruggu verklagi til að draga úr eldhættu vegna logavinnu/heitrar vinnu. Logavinna/heit vinna er meðal annars vinna með slípirokk, rafsuða, logsuða og önnur vinna þar sem notaður er opinn eldur, svo sem við lagningu þakpappa og viðhald á honum. Samkvæmt reglunum getur logavinna ekki farið fram nema að fengnu logaleyfi sem ábyrgðarmaður/eldvarnafulltúi og verktaki/starfsmaður staðfesta með undirskrift. Í logaleyfi eru tilgreindar þær varúðarreglur sem viðhafðar verða vegna verksins. Logaleyfi gildir ekki lengur en í einn sólarhring í senn. Um er að ræða PDF-skjöl þar sem unnt er fylla í viðeigandi eyður: Verklagsreglur logaleyfi-1
created with