Grundarfjörður

Grundarfjarðarbær eflir eldvarnir í samvinnu við Eldvarnabandalagið

Eldvarnabandalagið og Grundarfjarðarbær hafa gert með sér samkomulag um að efla eldvarnir á heimilum starfsmanna og á vinnustöðum sveitarfélagsins. Samkomulagið felur í sér að Grundarfjarðarbær innleiðir eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust. Tilnefndir verða eldvarnafulltrúar sem munu fá tilskilda fræðslu og annast síðan mánaðarlegt og árlegt eftirlit með eldvörnum á vinnustöðum sveitarfélagsins samkvæmt gátlistum Eldvarnabandalagsins.

Allt starfsfólk Grundarfjarðarbæjar fær jafnframt fræðslu um eldvarnir heimilisins og á vinnustað og eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Eldvarnabandalagið leggur til allt fræðsluefni án endurgjalds en Slökkvilið Grundarfjarðar annast fræðslu fyrir eldvarnafulltrúa og starfsfólk.

Eldvarnabandalagið hefur á undanförnum árum átt sambærilegt samstarf við fjölda sveitarfélaga með góðum árangri. Að samstarfi loknu fer fram sameiginlegt árangursmat og hefur í öllum tilvikum komið í ljós að samstarfið hefur skilað sér í auknum eldvörnum bæði á heimilum starfsfólks og í stofnunum viðkomandi sveitarfélaga.

Samkomulagið felur jafnframt í sér að stofnanir Grundarfjarðarbæjar innleiða verklagsreglur Eldvarnabandalagsins um logavinnu, en í þeim er kveðið um á nauðsynlegar varúðarráðstafanir sem viðhafa þarf þegar unnið er með opinn eld eða neista. Ennfremur setur sveitarfélagið sér og stofnunum sínum eldvarnastefnu að fyrirmynd Eldvarnabandalagsins.

Gert er ráð fyrir að fræðsla og annar undirbúningur fari fram í október og að eigið eldvarnaeftirlit verði framkvæmt hjá Grundarfjarðarbæ frá og með 1. nóvember næstkomandi.

Skildu eftir svar