eldvarnir 2

Sveitarfélagið Hornafjörður gerir átak í eldvörnum á heimilum og vinnustöðum

Eldvarnabandalagið og Sveitarfélagið Hornafjörður hafa gert með sér samkomulag um að efla eldvarnir á heimilum starfsmanna og á vinnustöðum sveitarfélagsins. Samkomulagið felur í sér að Sveitarfélagið Hornafjörður innleiðir eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust. Tilnefndir verða um 15 eldvarnafulltrúar sem munu fá tilskilda fræðslu og annast síðan mánaðarlegt og árlegt eftirlit með eldvörnum á vinnustöðum sveitarfélagsins samkvæmt gátlistum Eldvarnabandalagsins.

Allt starfsfólk sveitarfélagsins fær jafnframt fræðslu um eldvarnir heimilisins og á vinnustað og eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Eldvarnabandalagið leggur til allt fræðsluefni án endurgjalds en Brunavarnir Austur-Skaftafellssýslu annast fræðslu fyrir eldvarnafulltrúa og starfsfólk. Um 160 manns starfa hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Eldvarnabandalagið hefur á undanförnum árum átt sambærilegt samstarf við fjölda sveitarfélaga með góðum árangri. Að samstarfi loknu fer fram sameiginlegt árangursmat og hefur í öllum tilvikum komið í ljós að samstarfið hefur skilað sér í auknum eldvörnum bæði á heimilum starfsfólks og í stofnunum viðkomandi sveitarfélaga.

Samkomulagið felur jafnframt í sér að stofnanir Sveitarfélagsins Hornafjarðar innleiða verklagsreglur Eldvarnabandalagsins um logavinnu, en í þeim er kveðið um á nauðsynlegar varúðarráðstafanir sem viðhafa þarf þegar unnið er með opinn eld eða neista. Ennfremur setur sveitarfélagið sér og stofnunum sínum eldvarnastefnu að fyrirmynd Eldvarnabandalagsins.

Gert er ráð fyrir að fræðsla og annar undirbúningur fari fram síðsumars og í haust og að eigið eldvarnaeftirlit verði framkvæmt hjá Sveitarfélaginu Hornafirði frá og með 1. október næstkomandi.

Myndin var tekin við undirritun samningsins í ráðhúsinu á Höfn í Hornafirði 3. júní maí. Frá vinstri: Borgþór Freysteinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur-Skaftafellssýslu, Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Anna Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Eldvarnabandalaginu, og Garðar H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins.

Skildu eftir svar