SÞ

Skinney-Þinganes og Vélsmiðjan Foss efla eldvarnir á vinnustöðum og heimilum starfsfólks

Útgerðarfyrirtækið Skinney-Þinganes hf. og Vélsmiðjan Foss ehf. hafa gert samkomulag við Eldvarnabandalagið um að efla eldvarnir á heimilum starfsfólks og vinnustöðum á sjó og í landi. Fyrirtækin hafa umfangsmikla starfsemi á Höfn í Hornafirði og í Þorlákshöfn. Hjá þeim starfa alls um 300 manns.  Fyrirtækin taka upp reglulegt eigið eldvarnaeftirlit samkvæmt gátlistum Eldvarnabandalagsins nú í haust. Tilnefndir verða eldvarnafulltrúar sem fá tilskilda fræðslu og annast síðan mánaðarlegt og árlegt eftirlit með eldvörnum á vinnustöðum fyrirtækjanna. Starfsfólk fyrirtækjanna fær jafnframt fræðslu um eldvarnir heimilisins og á vinnustað og eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Eldvarnabandalagið leggur til allt fræðsluefni án endurgjalds en Brunavarnir Austur-Skaftafellssýslu annast fræðslu fyrir eldvarnafulltrúa og starfsfólk.

Eldvarnabandalagið hefur á undanförnum árum átt sambærilegt samstarf við fjölda sveitarfélaga og fyrirtækja með góðum árangri. Að samstarfi loknu fer fram sameiginlegt árangursmat og hefur í öllum tilvikum komið í ljós að samstarfið hefur skilað sér í auknum eldvörnum bæði á heimilum starfsfólks og vinnustað. Sveitarfélagið Höfn er einmitt meðal fjölmargra sveitarfélaga sem átt hafa samstarf af þessu tagi við Eldvarnabandalagið.

Samkvæmt samkomulaginu tileinka Skinney-Þinganes og Vélsmiðjan Foss sér verklagsreglur Eldvarnabandalagsins um logavinnu, en í þeim er kveðið á um nauðsynlegar varúðarráðstafanir sem viðhafa þarf þegar unnið er með opinn eld eða neista. Fyrirtækin setja sér einnig eldvarnastefnu að fyrirmynd Eldvarnabandalagsins, þar sem fjallað er um hvernig þau hyggjast standa að eldvörnum í húsnæði sínu.

Gert er ráð fyrir að fræðsla og annar undirbúningur fari fram nú í október og að eigið eldvarnaeftirlit verði framkvæmt hjá fyrirtækjunum frá og með 1. nóvember næstkomandi.

Skildu eftir svar