613325AC

Ísafjarðarbær eflir eldvarnir á heimilum og vinnustöðum í samvinnu við Eldvarnabandalagið

Eldvarnabandalagið og Ísafjarðarbær hafa gert með sér samkomulag um að efla eldvarnir á heimilum starfsmanna og á vinnustöðum sveitarfélagsins. Samkomulagið felur í sér að Ísafjarðarbær innleiðir eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust. Tilnefndir verða 30-35 eldvarnafulltrúar. Þeir munu fá tilskilda fræðslu og annast síðan mánaðarlegt og árlegt eftirlit með eldvörnum á vinnustöðum sveitarfélagsins samkvæmt gátlistum Eldvarnabandalagsins. Allt starfsfólk sveitarfélagsins fær jafnframt fræðslu um eldvarnir heimilisins og á vinnustað og eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Eldvarnabandalagið leggur til allt fræðsluefni án endurgjalds en Slökkvilið Ísafjarðarbæjar annast fræðslu fyrir eldvarnafulltrúa og starfsfólk. Um 420 manns starfa hjá Ísafjarðarbæ.

Eldvarnabandalagið hefur á undanförnum árum átt sambærilegt samstarf við fjölda sveitarfélaga með góðum árangri. Að samstarfi loknu fer fram sameiginlegt árangursmat og hefur í öllum tilvikum komið í ljós að samstarfið hefur skilað sér í auknum eldvörnum bæði á heimilum starfsfólks og í stofnunum viðkomandi sveitarfélaga.

Samkomulagið felur jafnframt í sér að stofnanir Ísafjarðarbæjar innleiða verklagsreglur Eldvarnabandalagsins um logavinnu, en í þeim er kveðið um á nauðsynlegar varúðarráðstafanir sem viðhafa þarf þegar unnið er með opinn eld eða neista. Ennfremur setur Ísafjarðarbær sér og stofnunum sínum eldvarnastefnu að fyrirmynd Eldvarnabandalagsins.

Gert er ráð fyrir að fræðsla og annar undirbúningur fari fram síðsumars og í haust og að eigið eldvarnaeftirlit verði framkvæmt hjá Ísafjarðarbæ frá og með 1. október næstkomandi.

Myndin var tekin við undirritun samningsins í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði 25. maí. Frá vinstri: Garðar H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins, Gísli Níls Einarsson, stjórnarmaður í Eldvarnabandalaginu, Birgir Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, og Sigurður Arnar Jónsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar.

Skildu eftir svar