IMG_7934

Vestmannaeyjabær eflir eldvarnir á heimilum og vinnustöðum

Vestmannaeyjabær hefur gert samkomulag við Eldvarnabandalagið um að efla eldvarnir á heimilum starfsmanna og í stofnunum sveitarfélagsins. Vestmannaeyjabær hyggst innleiða eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum samkvæmt leiðbeiningum, gátlistum og öðrum gögnum sem Eldvarnabandalagið hefur gefið út. Jafnframt innleiðir Vestmannaeyjabær verklagsreglur Eldvarnabandalagsins um varúðarráðstafanir vegna logavinnu.

Áður hafa Akranes, Húnaþing vestra, Akureyri, Fjarðabyggð, Dalvíkurbyggð og sveitarfélögin sex sem standa að Brunavörnum Austurlandi samþykkt að innleiða eigið eldvarnaeftirlit í samstarfi við Eldvarnabandalagið.

Eldvarnabandalagið hefur útbúið leiðbeiningar og önnur gögn vegna eigin eldvarnaeftirlits fyrirtækja og stofnana og verða þau höfð til hliðsjónar í samstarfinu við Vestmannaeyjabæ. Þjálfaðir verða eldvarnafulltrúar sem annast mánaðarlegt og árlegt eftirlit með eldvörnum í stofnunum Vestmannaeyjabæjar samkvæmt gátlistum Eldvarnabandalagsins frá og með 1. nóvember næstkomandi.

Þá fá allir starfsmenn sveitarfélagsins fræðslu um eldvarnir á vinnustaðnum og heima fyrir og verður þeim afhent handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Eldvarnabandalagið leggur til allt efni og ráðgjöf án endurgjalds.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir ánægjulegt að Vestmannaeyjabær sé kominn í hóp sveitarfélaga sem gera átak í eldvörnum.

– Við bindum vonir við að þetta samstarf stuðli að auknum eldvörnum bæði á vinnustöðum sveitarfélagsins og heimilum starfsfólks og auki þar með öryggi fólks. Vonandi smitar þetta líka út frá sér til fólks og fyrirtækja hér í bænum, segir Elliði.

Eldvarnabandalagið er samstarfsvettvangur um auknar eldvarnir á heimilum og vinnustöðum. Aðild að því eiga: Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, Félag slökkviliðsstjóra, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, TM hf., Vátryggingafélag Íslands hf. og Vörður tryggingar hf.

 

Skildu eftir svar