2017-09-28 10.10.28

Sveitarfélögin á Austurlandi efla eldvarnir

Brunavarnir Austurlandi og sveitarfélögin sem standa að þeim hafa gert samkomulag við Eldvarnabandalagið um að efla eldvarnir á heimilum starfsmanna og í stofnunum sveitarfélaganna. Samstarfið felur í sér að sveitarfélögin innleiða eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust samkvæmt leiðbeiningum, gátlistum og öðrum gögnum sem Eldvarnabandalagið hefur gefið út. Jafnframt innleiða sveitarfélögin verklagsreglur Eldvarnabandalagsins um varúðarráðstafanir vegna logavinnu.

Sveitarfélögin sem um ræðir eru Fljótsdalshérað, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fljótsdalshreppur, Vopnafjarðarhreppur, Borgarfjarðarhreppur og Djúpavogshreppur. Áður hafa Akranes, Húnaþing vestra, Akureyri, Fjarðabyggð og Dalvíkurbyggð innleitt eigið eldvarnaeftirlit í samstarfi við Eldvarnabandalagið og lofar árangur af samstarfinu góðu.

Eldvarnabandalagið hefur útbúið leiðbeiningar og önnur gögn vegna eigin eldvarnaeftirlits fyrirtækja og stofnana og verða þau höfð til hliðsjónar í samstarfinu við sveitarfélögin á Austurlandi. Þjálfaðir verða eldvarnafulltrúar sem annast mánaðarlegt og árlegt eftirlit með eldvörnum í stofnunum sveitarfélaganna samkvæmt gátlistum Eldvarnabandalagsins frá og með 1. desember næstkomandi.

Þá fá allir starfsmenn sveitarfélaganna fræðslu um eldvarnir á vinnustaðnum og heima fyrir og verður þeim afhent handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Eldvarnabandalagið leggur til allt efni og ráðgjöf án endurgjalds.

Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Austurlandi, segist fagna ákvörðun sveitarfélaganna um að efla eldvarnir á starfssvæðinu.

– Önnur sveitarfélög hafa jákvæða reynslu af sambærilegum verkefnum og ég er sannfærður um að þetta samstarf muni stuðla að auknum eldvörnum á vinnustöðum sveitarfélaganna og heimilum starfsfólks, segir Baldur.

Skildu eftir svar